Monday, 15 March 2010
Takk fyrir mig, London :)
Friday, 12 March 2010
Thursday, 4 March 2010
Ástin og samveran er mér hugleikin þessa dagana og sér í lagi þar sem ég er aðallega ein og ástlaus þessi misserin. Ekki það að ég eigi ekki fullt af vinum sem elska mig jafnmikið og ég elska þau en ég meina svona karl-kona-ástlaus. Flestum stundum er ég sátt við að vera minn eigin félagsskapur og ég er orðin nokkuð vön því að sofna ein, vakna ein, borða ein, fara ein á kaffihús, ein í bíó, ein í ferðalag, hlægja ein að brandara í útvarpinu eða fara ein á tónleika. Svo koma þessir dagar þar sem ég er bara hreint út sagt komin með ógeð á að vera ein! Á þessum stundum finnst mér næstum óhugsandi að ég eigi nokkurn tímann eftir að kynnast einhverjum og kyssa á ný! Þá virðist síst auðvelt að finna hreina, fallega og óspillta ást sem ekki kemur með óyfirstíganlegri fortíð, fordómum í garð straumlínulagaðra kvenna eða hreinlega áhuga á annari ást! Juh, hvað ég er mikil kjeddling að skrifa þetta en svona líður mér sem sagt á dögunum þeim, er ég örvænti yfir því að það verði bara einn tannbursti í bollanum það sem eftir er!...næsta dag
Þessa málsgrein hér fyrir ofan skrifaði ég í gær og ákvað að láta hana liggja í bleyti yfir nóttina! Ef ég birti hana ekki er það til að breiða yfir hvernig mér leið í gær af því mér finnst glatað að líða svona klisjulega! En ég birti hana af því að það er hluti af mér að líða eins og mér leið í gær! Ef það er glatað er það bara gott - það kom samt nýr dagur og mér líður ekki eins í dag. Ég er alveg viss um að í heiminum bíður mín prins sem getur ekki beðið eftir að hitta mig :)
Ég er barmafull af ást gagnvart umheiminum og umheimurinn gagnvart mér, ég þarf bara að taka á móti opnum örmum og gleðjast - hvar sem það verður, hvenær eða hvernig! Það eitt veit ástargyðjan sjálf, heill sé henni!
Wednesday, 3 March 2010
Ástin mín
Trúi á þig, bíð
Leita að þér, bíð
Hafna þér, bíð
Sendi eftir þér, bíð
Fagna þér, bíð
Reyni þig, bíð
Tala við þig, bíð
Sendi þig út, bíð
Treysti þér, bíð
Dreymir um þig, bíð
Hylli þig, bíð
Lifi þig, er
Komdu mér á óvart - elskaðu
Leita að þér, bíð
Hafna þér, bíð
Sendi eftir þér, bíð
Fagna þér, bíð
Reyni þig, bíð
Tala við þig, bíð
Sendi þig út, bíð
Treysti þér, bíð
Dreymir um þig, bíð
Hylli þig, bíð
Lifi þig, er
Komdu mér á óvart - elskaðu
Ást
Hvar er hún, ástin mín?
Hvar er hann, folinn minn?
Ást í hugarfylgsnum
án formála
Ást í leynum
án skilmála
Ást í skilum
að eilífu, fokk og enter!
Komdu, ástin mín - óttast'eigi, vertu memm
Hvar er hann, folinn minn?
Ást í hugarfylgsnum
án formála
Ást í leynum
án skilmála
Ást í skilum
að eilífu, fokk og enter!
Komdu, ástin mín - óttast'eigi, vertu memm
Saturday, 27 February 2010
Á tónleikum með mömmu :)
Hún sæta mamma mín heitin hefði orðið 57 ára í dag hefði hún lifað. Það eru þrjú ár síðan hún var kölluð á aðrar víddir og ennþá finnst mér það hafa verið í síðustu viku! Þó ég gráti enn yfir óréttlætinu og söknuði eftir henni og þess tíma sem fáum ekki að kynnast og vera saman, þá einbeiti ég mér að því að fagna í hjartanu því að hafa komið á þessa jörð fyrir tilstilli einmitt hennar og pabba og að hún hafi þó fengið þennan tíma til að takast á við þau verkefni sem henni voru ætluð í þessari jarðvist. Ég er þess líka fullviss að hún er hamingjusöm á dýrmætri leiðinni sinni. Hún flíkaði ekki tilfinningum sínum, hún mamma en hún kenndi mér margar dýrmætar lessíur og enn þann dag í dag er ég að uppgötva nýjar lessíur 'a la Oddný' :) Ég þakka fyrir mömmu mína - í tilefni dagsins ákvað ég að fara á tónleika í kvöld og bjóða henni með mér. Þarna sat ég 'ein' með mömmu og hlustaði á fagra og viðkvæma en þó sterka röddu ungrar söngkonu með risastórt hjarta. Kannski svolítið eins og mamma er í mínu hjarta -
Thursday, 25 February 2010
Lengi lifi listin!
Það sem ég er heppin og lukkuleg að vera hér og nú -Ég skutlaðist í kvöld upp í 'Top studio' til að klára eina mynd sem ég var með í vinnu. Þegar ég var að ganga frá laust niður í mig alveg ótrúlega góðri tilfinningu, riiiiiiiisaþakklæti og hamingjusemi. Það sem ég er heppin og þakklát fyrir að geta verið hér, að skapa og skoða sjálfa mig, félaga mína og þ.a.l. vonandi nokkuð gott þversnið af mannflórunni í gegnum listsköpun. Eftir þessar vikur skil ég ekkert í mér að hafa ekki haldið áfram þarna um árið í listnáminu þótt ég hafi nú alltaf sagt við sjálfa mig að ég hafi einfaldlega ekki viljað vera listamaður og þá þegar vitað að ég vildi gera eitthvað meira í sambandi við heilun og sköpun saman!
Hins vegar hef ég líka verið að velta fyrir mér hvort þetta hafi einfaldlega verið afsökun! Líf listamannsins er ekki auðvelt. Þessi sífellda sjálfsskoðun, sjálfsrýni, rannsóknir og óumflýjanlegur spegill sannleikans tekur á bæði taugar og sál! Ég er hamingjusöm með að hafa kynnst mannspekinni með þetta í huga því samkvæmt henni snýst allt um þróun, þroska, ferðina sjálfa frekar en áfangastaðinn og fyrir vikið er maður frjálsari skapari. En hún snýst líka um aga, að fara í gegnum nálaraugað í stað þess að gefast upp þegar harðna fer í ári og njóta þess er kemur upp á yfirborðið hverri stundu. Auðvitað er alltaf gaman að skapa verk sem snertir, sem maður finnur frið í og samhljóm eða ósamræmi sem hefur áhrif í óvæntir áttir.
Já, ég spyr mig því hvort þetta hafi verið hugleysi, ótti við allt hið óþekkta sem ég hefði getað orðið, vanmat eða leti? Skiptir svo sem ekki máli héðan af nema ef vera skyldi ég geti hvatt einhvern þarna úti til að láta vaða og gefast ekki upp þegar stundirnar verða erfiðar eða leiðinlegar. Vertu frjáls og skapaðu nýtt upphaf á þeirri stundu með áframhaldandi framgöngu en umfram allt njóttu líðandi stundar og þeirrar tilfinningaflóru og dýpt er hún býður upp á -
Lifið heil!
Subscribe to:
Posts (Atom)
