Monday, 4 February 2008

Af hverju þorskur?

Í dag var þorskur í hádegismat og spunnust umræður um kvikindið í kjölfarið.
'Þorskur er miklu betri en ýsa' - 'Ég vil ekki sjá þorsk' - ´Þetta er bara ormafæða' og fleira í þessum dúr fauk um hæðir! Af hverju ætli það séu svona skiptar skoðanir um þorskinn? Og af hverju skyldum við ekki borða hann meira hér á landi en raun ber vitni þrátt fyrir að flytja hann út í tonnavís? Ætli það sé bara vegna ormanna eða ætli það sé önnur og meira viðeigandi skýring á þessu? Mér dettur í hug að þar sem við fluttum út þorskinn til að skapa verðmæti, höfum við hreinlega ekki 'tímt' að borða hann sjálf, heldur borðað bara 'restarnar', þ.e. ýsuna, í staðinn. Getur verið verið einhver fótur fyrir því? Hér koma nokkrir molar um þorskinn sem ég fann á netinu; verð'ykkur að góðu :o)
Þorskur (fræðiheiti: Gadus) er vinsæll matfiskur með þétt, hvítt kjöt. Á Íslandi er almennt átt við Atlantshafsþorsk (Gadus morhua) en hann er algengur í kringum landið. Hann er botnfiskur og er algengastur á 100-400 metra dýpi.
Þorsklifur er brædd í þorskalýsi sem inniheldur A-vítamín, D-vítamín og Ómega-3 fitusýrur.

Smáþoskur étur ýmsa hryggleysingja eins og ljósátu, marflær og rækju en þegar hann stækkar étur hann loðnu og síli. Stórir þorskar éta karfa, smáþorsk, skráplúru, kolmunna, ýsu og síld. Margir fiskar og sjófuglar éta þorskseiði. Selir, hvalir og hákarlar éta stærri þorska.
Þorskur hefur þrjá bakugga og tvo raufarugga. Hann er straumlínulaga fiskur, kjaftstór og með skeggþráð á höku. Fiskurinn notar skeggþráðinn til að leita að fæðu á sjávarbotni.
Litur er breytilegur eftir aldri og umhverfi en oftast eru þorskar gulgráir á baki og hliðum með dökkum deplum. Ungir þorskar eru rauðleitir eða brúnir, þeir lifa gjarnan í þaraskógum og þessir litir falla vel inn í umhverfið þar. Eldri þorskar eru oft gulgráir með dökkum blettum að ofan og á hliðum og ljósari að neðan. Bakuggar þorsks eru þrír og raufaruggar tveir, eyruggar eru stórir og rákin er mjög greinileg.

Og þar höfum við það!

3 comments:

Anonymous said...

Ég held nú bara að ég hafi lesið það í einni af háskólabókum mínum að ástæðan fyrir því að Íslendingar (einir) borði ýsu frekar en þorsk sé einmitt af því að þorskurinn sé betri og hafi því verið fluttur út en við í staðinn sætt okkur við ýsuna. Þorskur væri því í alla staði betri gæði. Amk held ég að þeir sem hafi unnið í fiski (og kalla ekki allt ömmu sína) séu á því að þorskur sé betri fiskur en "helvítis ýsan sem liðast bara í sundur" (svo ég vitni nú í einhverja kelluna úr Meitlinum). Og hananú! Hvorki ljúga háskólabækur né kellurnar í Meitlinum!

Anonymous said...

En hvað þetta er fróðlegt og skemmtilegt hjá þér, Ásta mín! Ég kýs þorsk frekar en ýsu. Ég held að það sé vegna þess að einu sinni frétti ég að ýsan lifði á ruslfæði, væri hrææta og algjör sjávarvibbi. Ég nenni ekki að tékka á hvort það sé satt.
Það er líka hægt að veiða þorsk (e. cod) á Höpfnersbryggju, Akureyri. Kannski geri ég það þegar ég flyt þangað.
En er ekki fyndið að þorskur er cod á ensku? Og þá er nú aldeilis stutt í god. Kannski er þorskurinn gvuð.

Anonymous said...

Sibbý,ég óska þér til hamingju með nýjustu blaðastjörnuna, hann Sibbó þinn! Sérstaklega er ég ánægð með hann í saltkjetinu ;-)

Pib