Saturday, 9 February 2008

Fallegasta land í heimi!

Ísland hefur skartað sínu fegursta undanfarnar vikur á milli þess sem það hefur sýnt sínar myrkustu hliðar. Í síðustu viku var ógurlega kalt, nokkuð stillt en bjart og fallegt. Í þessari viku höfum við 'mátt þola' hvern storminn á fætur öðrum, sjónleysi sökum fjúks og ófærð á vegum flestum. Á laugardaginn fyrir viku hóf ég vinnu kl. 06 um morguninn og þá var frostið í -21°C sem er líklega það mesta sem ég hef upplifað síðan í Þórsmörk um aldarmótin s.l. þegar það fór niður í -27°C. Guði sé lof fyrir logn því dagurinn var sérlega fallegur! Í gær var ég veðurteppt í höfuðborginni, komst með naumindum yfir fjallið í morgun og nú bendir Siggi Stormur okkur á að 'teypa' gluggana í kross ef eitthvað skyldi nú koma fljúgandi inn um gluggana hjá okkur! Upplífgandi, ikke? Hressa týpan þarf nú aldeilis að þakka fyrir góða veðrið síðasta sumar og vonandi enn betra í sumar sem kemur -

En almáttugur minn; allan stein tekur úr í kvöld þegar þrumur og eldingar hleypa upp öflum sem ég bara hreinlega mundi ekki eftir, rafmagnið blikkar, húsið hriplekur og hriktir í! Haglél á stærð við egg lemur á rúðunum og manni bara hreinlega stendur ekkert á sama! Það er eins og hún vinkona mín StellaBella segir; c'est ca le truc, en Islande - en fin de la journée, tu ne sais pas si tu vas sortir de la route ou non!!! eða 'það er nú málið á Íslandi - maður veit aldrei hvort maður keyrir út af eður ei! ;o)
Jú, jú - við eigum kannski fallegasta land í heimi en er þetta ekki orðið ágætt bara svo við getum farið að tala um eitthvað annað en veðrið; já, kannski eins og ættfræði?!

3 comments:

Anonymous said...

hef einmitt komist að því að við erum náskyldar konungsfjölskyldunni hér í landi (þar sem farið er að vora btw)í 21. lið.... þa'erekkislæmt ;-)

murta said...

eitt stórt knús!

Anonymous said...

... og hvar er bloggið sem mér var lofað í gærkveldi??

Sólarkram
Søs