Saturday, 31 January 2009

Að éta leifar sinnar tegundar!

Samfélagið okkar hefur breyst svo um munar og mér til mikillar undrunar er enn fólk (jafnvel í kringum mann!) sem talar 'frá hjartanu' um 'ástandið' og gefur til kynna að helv.... lýðurinn sé fávitar! Ef ástandið sannar fyrir okkur að samfélag okkar manna sé hreint bara eins og í dýraríkinu, þ.e. 'survival of the fittest-samfélag' þar sem þeir grimmu lifa af, þá má almættið sjálft eitt bjarga okkur!!! Í dýraríkinu hafa þau grimmu amk vit á að losa sig við líkama eða leifar hinna veiklyndu (þ.e. fjöldans!) með því t.d. að éta þær! Það fyndist okkur náttúrulega ákaflega rangt og ósiðlegt í heimi manna, er það ekki? Það virðist miklu nær að láta hina veiklyndu bara éta skít þeirra grimmu - það er ekkert að því!

2 comments:

Finnur said...

Þrátt fyrir dapurleg inntak skrifa þinna get ég ekki annað en brosað út í annað yfir hinni skemmtilegu mynd sem fylgir með, bæði vegna hinnar hróplegu staðreyndarvillu (rautt óeldað kjöt og Ásta) sem og dreymið afturhvarf til þess tíma sem við vorum að rölta niður laugarveginn og rákumst á þetta útigrill. Aðstæðurnar kölluðu nánast hástöfum á þessa ljósmynd. Við sinntum kallinu.

Anonymous said...

Já, þá voru tímarnir sko aðrir en við vorum greinilega langt á undan okkar samtíð! Mér datt amk ekki í hug að þetta yrði raunin!!! Svo fær maður náttúrulega stoppelsi af svona áti, ik?