Áður en ég hélt til Wales í síðustu kom ég við á Gatwick (enda alveg í leiðinni ;) og hitti ofurkæra vinkonu mína á afmælisdaginn hennar, ásamt nokkrum vinum. Fyrir utan augljósa ánægju og gleði yfir að fá að knúsa vini sína og fagna afmælisdegi þeirra og fyrir utan það að Baba fékk rauðkálið sitt, var ég svo heppin að fá hana Ástríði loks í hendurnar þar sem hún var uppseld þegar ég fór frá landinu skömmu áður! Ég byrjaði svo að horfa á sunnudagskvöldið og er búin að vera að halda aftur af mér að klára ekki allan pakkann í einu :) Mikið ofsalega finnst mér þetta vel heppnaðir og skemmtilegir þættir... fullkomin afþreying fyrir íslensk hjörtu! Nú á ég bara tvo þætti eftir og get varla beðið eftir að horfa á þá á eftir.Þegar ég er spurð hvað nafnið mitt þýði (ég nota yfirleitt bara Ásta enda Aðalheiður, jafnfallegt og mér finnst það nafn, dálítið stór biti að melta!) segi ég að það þýði 'Luuvvvvv' en hún Erla mín sagði strax 'Passjón' og mér finnst það eiginlega bara skemmtilegra - samanber:
'Nafnið Ásta kemur fyrir í Landnámu en móðir Ólafs helga Haraldssonar hét Ásta' segir á www.snara.is - vefbók og síðar er bætt að hugsanlega sé Ásta stytting á Ástríði. Áfram Ástríður!

4 comments:
Ég sé að enginn hefur kommentað við af hverju þú átt að blogga. Þú bara verður að blogga Ásta mín. Mér finnst svo gaman að lesa þetta og sjá hvernig þér líður og svona.
Síðan finnst mér að þú eigir að segja fólki að nafnið þitt þýði Luuvvvv. Það er bara svo töff!!
Ég fæ spóluna lánaða þegar ég kem í húsmæðraorlofið mitt, og horfi á Ástríði upp í rúmi.
spólu? Hvað er ennþá 1980 hjá þér Baba?
mig langar ad sjà petta spoluna ! mér finnst hùn svo skemmtileg , eins og pù lluuuuuuuuvvv ;)
àfram ad skirfa af pvi ad mig langar ad lesa!! :)
knùùùùùùùùsss
Post a Comment