Saturday, 26 January 2008

Kærleiksflensan!

Ófærðin virðist ætla að hertaka kroppinn líka því kuldahrollur, sviti og önnur ólíðan (aka endurnýjun!) gerir vart við sig í dag! Það er því tilvalinn dagur til að hugsa! Og vera! Og drekka te! Og endurnýjast! Hressa týpan aðeins í lagningu!

Ég fór í jarðarför í gær með félögum mínum héðan til fylgdar ungri konu sem var að vinna með okkur. Hún háði ótrúlega baráttu við þetta erfiða, margslungna og að því er virðist duttlungafulla krabbabein sem mamma lét í minni pokann fyrir. Hún hélt úti heimasíðu með hugleiðingum um lífið og tilveruna, bæði um 'krabbann' eins og hún kallar hann en svo bara um lífið sitt almennt! Það er ótrúlega dýrmætt að lesa bloggið hennar og sjá hvað hún var opin með þetta og tilfinningar sínar og líðan.
Þetta fær mann auðvitað til að hugsa um lífið og hvað það er ótrúlega dýrmætt að eiga að félaga (í flt) í þessum heimi og vera hreinn og beinn! Enn fremur hvað það er sorglegt að við skulum eyða orku og ooooooooofurdýrmætum tíma í að vera ósátt, taka þátt í, í raun óheiðarlegum, samskiptaleikjum, keppa án umburðarlyndis og bara almennt að trúa því að fólk sé slæmt og að við séum hverju öðru betra! Auðvitað eru allir 'betri' í einu eða öðru en næsta lifandi vera en allir eru þá líka 'verri' í einhverju (af því að næsta manneskja er 'betri'), ef við viljum horfa á þetta með raunmannlegum augum nútímans! Við erum öll fædd á þessa jörð af einhverjum ástæðum, ekki bara í litla þorpinu eða stórborginni sem 'hefur ekkert að gera með jörðina að gera' (sem er náttúrulega helber vitleysa!) heldur af því að við erum sameiginlega hluti af stóru verki! Stóru verki sem á sér stað í undurfagurri og nærandi veröld með mismunandi hindrunum sem við getum 'unnið' á! Haldiði virkilega að Yfirvaldið hafi sett okkur hér saman til að bara hlægja að okkur þegar okkur mistekst?! Það skapaði okkur og við sköpum okkar líf með þess aðstoð! og hvers annars!KÆRLEIKSAUGUN NÆRA OKKUR MEST OG BEST OG GERA OKKUR KLEYFT AÐ KLÍFA JAFNVEL STÆRSTU FJÖLL HIMINGEIMANNA ALLRA! STÆRRI EN OKKUR GRUNAR OG MUN GRUNA!

ps. ég fann þessa mynd á vef Kærleikssetursins (http://www.kaerleikssetrid.is/) og vona að það sé í lagi að ég nota hana, annars bið ég viðkomandi að hafa samband og ég tek hana út eins og skot!

2 comments:

Kristín Guðbrandsdóttir said...

Mikið er ég ánægð með þig Sibbý mín. Nú er bara að vera duglegri en ég að skrifa - það verður nú ekki erfitt.
Kv. Kgb

Anonymous said...

Vona að flensan fari mildum höndum um þig Sigljúg mín. Í dag er fyrsti dagurinn sem ég hef klætt mig í aðrar spjarir en náttföt í 6 heila daga... Þetta blogg lofar góðu hjá þér annars, hér er vandað til verka eins og siður er minni vinu. Og kann ég því vel!
kv.Pibbý