Það sem ég er hissa á sjálfri mér! Búin að fara í laugina í vikunni og í leikfimi og juuuuuuuminn hvað mér leið vel, sér í lagi í lauginni. Það hefur sko verið lægð yfir landinu hjá mér!Það er eitthvað töfrandi við sund. Það er svo frelsandi tilfinning að spyrna sér frá bakkanum og finna hvernig líkaminn klýfur vatnið og eiginlegir kraftar kroppsins drífa hann og andann sem í honum býr fram á við og upp á yfirborðið til að draga næsta anda sem sameinast svo andanum fyrrnefnda. Svo pissar maður svo mikið og drekkur vatn á eftir að nýrun hljóta að vera hrein og fín eins og manni líður reyndar öllum, svo ferskur og strokinn allur. Almáttugur, hvað sund er gott! Það er ekki furða að mér líði stundum eins og fiski á þurru landi...
Ps. Ferðaflensa á heimlinu gerir vart við sig, létthituð olífuolía með hvítlauki til áburðar!
Ps. Ferðaflensa á heimlinu gerir vart við sig, létthituð olífuolía með hvítlauki til áburðar!

No comments:
Post a Comment