Ástin og samveran er mér hugleikin þessa dagana og sér í lagi þar sem ég er aðallega ein og ástlaus þessi misserin. Ekki það að ég eigi ekki fullt af vinum sem elska mig jafnmikið og ég elska þau en ég meina svona karl-kona-ástlaus. Flestum stundum er ég sátt við að vera minn eigin félagsskapur og ég er orðin nokkuð vön því að sofna ein, vakna ein, borða ein, fara ein á kaffihús, ein í bíó, ein í ferðalag, hlægja ein að brandara í útvarpinu eða fara ein á tónleika. Svo koma þessir dagar þar sem ég er bara hreint út sagt komin með ógeð á að vera ein! Á þessum stundum finnst mér næstum óhugsandi að ég eigi nokkurn tímann eftir að kynnast einhverjum og kyssa á ný! Þá virðist síst auðvelt að finna hreina, fallega og óspillta ást sem ekki kemur með óyfirstíganlegri fortíð, fordómum í garð straumlínulagaðra kvenna eða hreinlega áhuga á annari ást! Juh, hvað ég er mikil kjeddling að skrifa þetta en svona líður mér sem sagt á dögunum þeim, er ég örvænti yfir því að það verði bara einn tannbursti í bollanum það sem eftir er!...næsta dag
Þessa málsgrein hér fyrir ofan skrifaði ég í gær og ákvað að láta hana liggja í bleyti yfir nóttina! Ef ég birti hana ekki er það til að breiða yfir hvernig mér leið í gær af því mér finnst glatað að líða svona klisjulega! En ég birti hana af því að það er hluti af mér að líða eins og mér leið í gær! Ef það er glatað er það bara gott - það kom samt nýr dagur og mér líður ekki eins í dag. Ég er alveg viss um að í heiminum bíður mín prins sem getur ekki beðið eftir að hitta mig :)
Ég er barmafull af ást gagnvart umheiminum og umheimurinn gagnvart mér, ég þarf bara að taka á móti opnum örmum og gleðjast - hvar sem það verður, hvenær eða hvernig! Það eitt veit ástargyðjan sjálf, heill sé henni!

4 comments:
Ég gleymdi einu, ég gæti alltaf selt þig á uppboði!
ég skrái þig í deit-þáttinn hérna á ÍSL :) DJÚPA LAUGIN ;)
en svona b.t.w. þá eiga eftir að verða tveir ef ekki fleiri tannburstar í glasinu hjá þér í framtíðinni:)
Elsku músslan mín, ég skil alveg hvernig þér líður. En ef við finnum ekki ástina aftur þá flytjum við bara saman og stofnum kommúnu fyrir mjúkar og fallegar konur, eins og við jú erum.
Annars er ég ferlega tölvulaus. Mig langar að heyra í þér. Geturðu sent mér sms með númerinu þínu? Eða einhvern veginn látið mig fá númerið þitt?
Lovv, Lára
Ástin er í sjálfri þér "Sibbý sætan min" .... Gott að lesa bloggið þitt, svo mikið þú ......
Passaðu þig á ástarenglinum thi hi hi
Love Zordis
Post a Comment