Á göngu minni í dag hitti ég fyrir 2 velklædda, unga pilta með nöfn sín skrifuð á barmmerki. Þeir tóku mig tali en ég gat bara með engu móti skilið drenginn sem talaði fyrstur! Hann talaði ensku, jú, en var ógurlega undarlegur til augnanna, eins og hann vildi dáleiða mig og einkar og sér í lagi undarlegur til máls - á endanum kom það svo.... 'Who has helped you the most in you life?' Hmmmmmm, fyrir utan hið augljósa svar sem þeir leituðu að þá hugsa ég það sé ég sjálf bara! En þeir komu reyndar með aðrar góðar spurningar þótt ég sé kannski alveg á því að svörin þeirra hefðu kætt mig...
Have you ever wondered; Why are there so many different churches/religions in the world? How come there is only one bible but so many different genres of Christianity?
Við erum ekki steypa, gæs.... við erum ekki steypt í sama mótið, við erum margbreytilegt mannfólkið sem lifum á mismunandi tímum, mismunandi fæði, á mismunandi stöðum með mismunandi fólki! Er í alvöru hægt að 'kerfisvæða' trú eitthvað frekar en það hvernig reka á gott samfélag? Maður spyr sig!

3 comments:
Elsku elsku elsku vinkona. Mikið er ég nú ánægð að sjá þig blogga á ný. Ég hef alltaf kíkt hér við öðru hverju en alveg gleymt því undanfarnar vikur. Og nú veit ég allt. Átti eftir að lesa svo mikið að ég hefði getað sleppt því að ná mér í bók á bókasafnið. Verð þó að segja að danskortið var líklega með því flottara sem ég hef séð.
Ég er bara svo ánægð fyrir þína hönd að vera komin til UK og öfunda þig pínulítið. Skv google maps hefðu ekki verið nema 1 hour and 49 minutes á milli okkar. Og svo var ég næstum því búin að flytja mun nær þér.
Hlakka til að lesa meir og hafðu það sem allra best.
Luv
Harpa Guðz.
hahaha hormóna ;) good one :)
thíhíhí - hugsaði einmitt um þig, Anja mín, þegar ég las titilinn og svo komu nokkrir aðrir góðir frasar upp í hugann, frá ykkur báðum systur kærar, svona um gelgjuskeiðið og hana ömmu ;-)
gaman að því!
það er svo gaman að lesa bloggið þitt - lifandi og litríkt!
Alveg eins og ég vonandi verð á næstu dögum / vikum þegar ég losna undan þunga tónussins ;-) Þetta er annars allt að hafast!
Stórasta knús sendi ég yfir hafið, með frostbitnu fingrum mínum.
H
Post a Comment