Friday, 11 December 2009

On the road again....

Nú eru bara 2 dagar í brottför - bæði spennandi og skemmtilegt en ég verð nú að viðurkenna að ég er pínuoggulítið rosamikið kvíðin fyrir því að fara. Það verða nefnilega engin börn til að knúsa snemma morguns eða strjúka yfir Pagten - nú, eða hnyttið og skemmtilegt par sem maður fær að rústa í spilum á kveldin, enginn systraslagur, engir gubbuskápar, engin hjónó! Er bara strax byrjuð að grenja! En ég kem til baka - og þau koma til mín (Baldur Freyr er nú þegar farinn að tilkynna það vinum sínum að hann sé að fara annað slagið til Englands, sko!) - ég hlakka til að bjóða þau, sem og fleirum, velkomin í mitt nýja líf um komandi framtíð.

Ég fer sem sagt á sunnudaginn, leggst til hvílu í eina nótt við Bremen og svo jafnvel 2 nætur í Brussel hjá vinkonu minni. Samkvæmt Google Maps á ferðin sjálf, þ.e. keyrslan ekki að taka meira en 13,5 klst - vel sloppið, ik? Nú er bara að keyra upp stemmninguna, skoða mig um, njóta þess að fylgjast með landslaginu, skiltunum, fólkinu, tungumálunum, myntinni og bara orkunni breytast á leiðinni og vita að á endanum kem ég á stað þar sem ég sjálf mun taka breytingum til bættari dömu.

Fyrsta heimili mitt verður nú bara heimavistin við skólann en svo langar mig að leigja mér eitthvað meira 'heima'. Ég er orðin svo gömul að ég nenni ekki þessu 'lækkað'ítónlistinni-égvaknaþegarþúpissar-hveráaðfaraútmeðruslið-veseni' með ókunnugum. Þetta vil ég bara ólm fá að vesenast í með ástmanni mínum komandi. Mig dreymir um svona gamalt 'cottage' eins og í myndinni, muniði, Holidays - já, og það væri þá bara alls ekki úr lagi að þessi enn óþekkti ástmaður fylgdi bara með samningnum. Jú, jú... takk, takk, því ekki það?

Að gefnu tilefni er heimilisfangið á nýja aðsetrinu mínu þar til annað kemur í ljós:
Tobias School of Art and Therapy
Coombe Hill Rd
East Grinstead
West Sussex
RH19 4LZ
UK

símanúmer læt ég gossa hér síðar og bara svo þið vitið það; þá er best að fljúga á Gatwick!

3 comments:

Anonymous said...

já það er misskipt manna gæðum og ætli heili minn, hugur og hjarta verði ekki ansi skiptur á milli Danaveldis og Englaveldis.

Ef viftureimin verður horfin úr bílnum á sunnudagsmorgun, þá veistu hver skilaboðin eru ;-)

Knús
H

p.s. voðalega er þetta hausstór kona þér við hlið ullandi

murta said...

Ég á heima í svoleiðis húsi!

Anonymous said...

hvad?hvad? ert pù ad fara nùùùna???tu passes pas à melun??allezzzzz!!!!s il te plait!!!