Þetta er nokkurn veginn ferðalagið sem ég er búin að vera á í hjarta og huga síðustu misseri. Lokaniðurstaða er spennandi og flöktar vel við magatilfinninguna. Ég ætla að fara aftur til Bretlands og klára námið í Art Therapy. Þótt mig hafi langað að taka eitt ár í að ferðast, slæpast og sjá hvað gerist, fann ég að það er ekki endilega það sem mig vantar í sálinni. Og satt best að segja á ég ekki fyrir spontant ævintýraári með óendanlegum flugferðum og lestarferðum - og langar ekki nógu mikið í það til að skuldsetja mig fyrir því! Ég á huga yfirfullan af hugmyndum og áhuga. Ég á hjarta yfirfullt af kærleik og ástríðu. En ég á ekki fullt rassgat af seðlum! Ekki enn -Que sera, sera... og Indland verður vonandi áfram á sínum stað - draumurinn lifir!
Það er mikill skóli í sjálfu sér að sleppa - sleppa höndinni af öryggi þátíðarinnar, dýrmætu ástarsambandi, ódauðlegum foreldrum, fjölskyldu, vinum og félagsneti, fjárhagslegu öryggi, skemmtilegri vinnu og vinnufélögum sem lifa einnig sem fjölskylda manns, fallegu þaki yfir höfuðið og Lúllagreyinu bara svo eitthvað sé nefnt! En um leið og sleppir er ávinningurinn mikill því það er ekki samasem-merki á því að sleppa og glata! Geymdur er græddur eyrir og ég treysti að allt það sem ég hef 'fest' fjár mitt í sem reynslu, tíma og samveru er geymt en ekki gleymt - hvað þá glatað!
Mig vantar að klára - ljúka því sem ég er byrjuð á og hef dreymt um síðan ég var unglingur. Ég vonast til að geta þá staðið fastar á bak við hugmyndir mínar um sjálfbært líf í framtíðinni, framkvæmt, verið besta ég og látið það besta hverju sinni frá mér leiða í þessum heimi. Eða haldið áfram að gera það... og bjargað mannslífum!

2 comments:
Mér finnst frábært að það sé komin lending í málin, Ásta mín. Gangi þér roslega vel! Fullt af knúsi og kossum frá mér og stellunum.
þetta verður geggjað :) hlakka til að koma í heimsókn :)
sakna þín.... :*
A
Post a Comment