... ég vanda mig á hverjum degi við að taka hversdagsleikanum eins og hann er og lifa algjörlega í núinu! Ég get þó ekki annað en viðurkennt að ég er pínu pirruð yfir hvað veðrið stjórnar miklu hér og hefur mikil fyrirfram áhrif, að mér finnst! Ég hlakka svo til að byrja í skólanum og komast í rútínu, að það er hálffúlt að skólanum sé frestað á morgun vegna yfirvofandi snjókomu! Ég fór t.d. í 1,5 klst göngu í dag og var 2 klst úti að moka í kringum húsið okkar í dag... Ekkert að veðri, ekki einu sinni kalt! Jú, það er ennþá mikill snjór en ekki nægur til að fresta daglega lífinu, finnst mér! Væri ekki líka skynsamlegra að gera ráð fyrir að lífið haldi áfram og fresta þá bara að morgni hins eiginlega dags, ef ástæða er til?!Það er líka áhugavert að hlusta á útvarpið - reyndar ágætt að ég heyri miklu meira talað um veðrið og tengd mál (færðina etc) heldur en Ísland og hversu ómöguleg við erum! Í morgun þegar ég fann til morgunmatinn minn hlustaði ég t.d. á þátt þar sem fólk hringdi inn og þar voru sérfræðingar að kenna fólki að spara orku, keyra jeppa, bjarga dýrum og komast af almennt í kuldanum! Einnig hvernig á að búa til göt í frosin vötn til að nálgast vatn (bræða gat á ísinn - ekki brjóta, af hættu við að detta ofan í !) Þar hringdi einnig inn kona sem ætlar að opna neyðarverslun í þorpi ekki svo langt héðan, því það er ekkert kaupfélag í þorpinu (né næsta þorpi!) og almenningssamgöngur ekki virkar þannig að fólk þarf að ganga 8 km (í snjónum) til að ná í nauðsynjavörur, þ.e. þeir sem ekki keyra! Það er alveg í takt við það að fara í búðina, fólk er greinilega að hamstra því fyrir miðjan opnunartíma dagsins eru t.d. brauð, mjólk, grænmeti og egg iðulega uppurin! Ekki það ég vilji vera hrokafull en við verðum nú aðeins að sýna smá skynsemi! Ég segi bara eins og gamli pólski karlinn í fréttunum; 'nú hleypur fólk upp til handa og fóta við minnstu snjókomu eða frost' - við erum orðin svo góðu vön að við kunnum bara ekki á þetta lengur! Þetta er mesti vetur hér í Bretlandi bara í 42 ár, minnir mig að ég hafi heyrt einhvers staðar - það er þá fullt af fólki á mínum aldri sem hefur bara aldrei upplifað almennilegan vetur á ævinni sinni! Að hugsa með sér...

1 comment:
Og mest pirrandi að stöðva ferðalög í dalinn minn!
Post a Comment