Djö... er gaman að hitta fólk! Ég hef verið svo félagslega einangruð, þannig séð (skrifaði fyrst 'einanguð' - spurning hvort það sé 'freudian slip' eða hvað; einan guð!), að mig hefur undanfarna daga, þyrst hreinlega í félagslíf! Í þessu veðralamasessi, lengist biðin eftir að námið hefjist og skólinn tilkynnti t.d. í dag að það yrði ekki skóli á mánudaginn. Men, hvað ég var súr yfir að vera ekki farin til hennar Böbu minnar í Wales eins og ég ætlaði fyrr í vikunni en þorði ekki af ótta við að komast ekki til baka og geta þar af leiðandi ekki byrjað á réttum tíma, svona eftir allt saman! Til allrar hamingju hitti ég einn vin minn í gær í kaffispjalli í bænum og aðra vinkonu í dag í meira kaffispjalli og viti menn; sál mín lyftist og gleðst - mér finnst ég vera hluti af stærri heild! Maður er manns gaman er eitthvað sem sannast best er skortur er á!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)


3 comments:
Guði og Gruði sé lof! Ég hlakka bara til að hitta þig í næstu viku. Það er margt að skrafa og ráðstafa.
Hann er svo sexíííí!!
Cheers from Smith´s, in the heart of Sighlon. A friend to count on in times of need or just anytime.
Yours truly, Sighsmiths
Post a Comment