Frá 20. des. s.l. á vetrarsólstöðum til gamlársdags á fullu tungli, þagði ég og hugleiddi - gladdist og þjáðist í senn. Á Vipassana, 10 daga þöglu hugleiðslunámskeiði eða 10 days silent retreat in East Anglia...... þar var ég! Fyrsta ræs á morgnana var kl. 04 og hugleiðslan byrjaði kl. 04.30 og stóð með matarhléum og fyrirlestrarhléi fram á kvöld, ljósin slökkt um kl. 21.30. Þetta var bæði dásamlegt og hræðilegt og allt þar á milli en ég er himinlifandi að hafa farið og ánægð með fræðin, tæknina og árangurinn. Ég mæli með þessu og þeir sem vilja kynna sér málið frekar, endilega kíkið á heimasíður eins og http://www.dipa.dhamma.org/, http://www.vipassana.com/ eða http://www.dhamma.org/.Það er skrítið og áhugavert að koma út úr svona dvöl og mikilli samveru með engu nema sjálfum sér að algjöru leiti í 10 daga. Einnig eftir að deila herbergi með 5 öðrum konum í algerri þögn (engar augngotur eða handapat), engin skriffæri, bækur, tónlist, tölvur, símar eða annað sem annars dreifir athygli okkar svo ötullega í hversdagsleikanum. Það er boðið upp á létt en gott fæði og morgunmaturinn kl. 06.30 var algjörlega í uppáhaldi. Ég er nú opinberlega farin að borða hafragraut, ekki seinna vænna fyrir hálffertuga konuna! Ekki að það sé það eina sem komið hafi út úr dvölinni en....

1 comment:
Amma er voða hrifin af brauðmeti sem hún kallar vipparasnúss. Eitthvað svipað heldurðu?
Post a Comment