Monday, 18 January 2010

Today's story

Skólinn hófst í dag - ég er í 7. himni.
Dagurinn byrjaði á 'Therapeutic use of story' þar sem við skoðuðum hugtakið 'saga' í allri sinni dýrð. Hvað er saga? hver er tilgangur sögu? hver er sögumaður? hver er hlustandi? hver eru mörkin á milli sögumanns-sögu-hlustanda? Hver er okkar saga? hver er saga meðferðarleitanda? Heimspekilegar pælingar með útgangspunkti frá meðferð eða þerapíu - alveg dásamlegt að byrja á þessu viðfangsefni. Í feimni minni hef ég nefnilega alltaf verið skíthrædd við að segja frá, segja sögu, hvort sem það er í orðum eða öðrum formum, hvort sem það er mín saga eða aðrar sem ég hef lært og þ.a.l. verið hrædd um að gleyma eða rugla! Að sama skapi er ég svo heilluð af þessu formi, þ.e 'sagnalistinni' sem slíkri, hvort sem það á við rímurnar okkar gömlu, persónulegar sögur hvers og eins eða sögur frá svörtustu Afríku sem sagðar eru í kringum eld með tilþrifum. Seinnipartinn skoðuðum við málverk eftir vissum kenningum og gerðum æfingar sem þjálfa vitund, meðvitund og skynjun.
Í kvöld fór ég svo á fyrirlestur um mannspeki og næringu á Emerson, þar sem ég lærði undirstöður mannspekinnar fyrir allmörgum árum.
Hópurinn í skólanum er góður, við erum 10, þ.a. 2 karlmenn sem gerist nú ekki á hverju ári! Það er gott að fá smá mótvægi við allri mýktinni þótt við konurnar séum góðar út af fyrir okkur. Og svo var sjarmerandi kennarinn líka karlkyns þannig að dagurinn var í alla staði í jafnvægi :)
Jah, þvílíkur léttir að stíga í gegnum flóðmúrinn og anda inn í silkimjúkt lærdómsflæðið -

2 comments:

murta said...

Gemsinn minn er eitthvað að bila, ég fæ bara annaðhvert skilaboð og seint og illa hitt hvert. Reyni að koma þessu í stand. Gott að heyra að það er gaman í skólanum. Svo bara beint í frí!?

Unknown said...

Frábært að þú sért loks byrjuð í skólanum.