Lukkan yfir mér þarna á miðvikudaginn að fara ekki í afleiðaferð í Ikea (mikil hætta á eyðslu sem ekki má!). Ég hitti vin minn óvænt í kaffilögg og út úr því kom svo partýboð í tilefni gamlársdags í Serbíu, hjá serbesknum vini vinar míns. Þar var sem sagt komið saman gott fólk af ýmsum þjóðarbrotum; Íslandi, Serbíu, Englandi, Grikklandi, Hollandi og Dóminíska lýðveldinu! Allt fór vel fram og fallega og gott að finna félagslegt netið myndast og stækka hægt og bítandi. Þótt ég kvarti yfir að vera ein á stundum, verð ég að viðurkenna að það er líka þægilegt, engar væntingar, engar ögranir! Nú hverfur frost úr jörðu og sjálf er ég að brjótast hægt og bítandi út úr hermísku félagsmynstri, ögra sjálfinu með því að kynnast nýju fólki. Það er áhugavert að kynnast fólki og komast nær kjarna hvers og eins, framhjá eða í gegnum fyrstukynnaupplýsingaöflunina og einnig að leyfa fólki að komast að kjarna þínum (mínum!). Þá finn ég flóðin nálgast, eins og gjarnan gerist eftir miklar úrkomur. Ég hlakka rooooooooosalega til að byrja í skólanum og leyfa öllu því sem er að brjótast um í ástríðufulla en viðkvæma hjartatetrinu mínu að koma upp á yfirborðið og flæða fram í eiginlegu formi og efnislegri umbreytingu.Thursday, 14 January 2010
Íhuga - frjósa - flæða
Lukkan yfir mér þarna á miðvikudaginn að fara ekki í afleiðaferð í Ikea (mikil hætta á eyðslu sem ekki má!). Ég hitti vin minn óvænt í kaffilögg og út úr því kom svo partýboð í tilefni gamlársdags í Serbíu, hjá serbesknum vini vinar míns. Þar var sem sagt komið saman gott fólk af ýmsum þjóðarbrotum; Íslandi, Serbíu, Englandi, Grikklandi, Hollandi og Dóminíska lýðveldinu! Allt fór vel fram og fallega og gott að finna félagslegt netið myndast og stækka hægt og bítandi. Þótt ég kvarti yfir að vera ein á stundum, verð ég að viðurkenna að það er líka þægilegt, engar væntingar, engar ögranir! Nú hverfur frost úr jörðu og sjálf er ég að brjótast hægt og bítandi út úr hermísku félagsmynstri, ögra sjálfinu með því að kynnast nýju fólki. Það er áhugavert að kynnast fólki og komast nær kjarna hvers og eins, framhjá eða í gegnum fyrstukynnaupplýsingaöflunina og einnig að leyfa fólki að komast að kjarna þínum (mínum!). Þá finn ég flóðin nálgast, eins og gjarnan gerist eftir miklar úrkomur. Ég hlakka rooooooooosalega til að byrja í skólanum og leyfa öllu því sem er að brjótast um í ástríðufulla en viðkvæma hjartatetrinu mínu að koma upp á yfirborðið og flæða fram í eiginlegu formi og efnislegri umbreytingu.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

1 comment:
Það er víst enginn eyland.
Post a Comment