Monday, 24 May 2010
Letting go
Blek - kol - fjöður - bambuspenni - kínverskur pensill... dagurinn ber í skauti sér loforð um breytingar, umbreytingar, ný tækifæri -
Saturday, 24 April 2010
Sunday, 28 March 2010
Breytingar, dauði, nýtt líf - endurnýjun!
Það eru miklar hræringar í mannspekiheimunum í Bretlandi (sem og líklega annars staðar) með annað hvort lokunum eða miklum breytingum á rekstri stofnana og skóla. Síðastliðinn laugardag var lokahátíð n.k. haldin við Emerson College í Forest Row. Skólanum, í þeirri mynd er ég og fjölmargir aðrir Íslendingar þekkja hann, hefur verið lokað og nú er að sjá hvað kemur upp úr öskunni. Um leið og fólk tengt skólanum (þ.á.m. ég sjálf) er vongott og bjartsýnt um framhaldið eru uppi miklar og stórar spurningar og áhyggjur um framhaldið. Stundum er nauðsynlegt fyrir gamlar, fúnar og þungar byrðar að leysast upp og endurnýjast til að nýtt og ferskt brum sjái ljósið. Það er hins vegar spurning um hver og hvernig er unnið úr byrðunum - við því er beðið svara!Monday, 15 March 2010
Björk, Beta og Vivianne... á sama vegg!
... nema kannski -
Takk fyrir mig, London :)
Friday, 12 March 2010
Thursday, 4 March 2010
Ástin og samveran er mér hugleikin þessa dagana og sér í lagi þar sem ég er aðallega ein og ástlaus þessi misserin. Ekki það að ég eigi ekki fullt af vinum sem elska mig jafnmikið og ég elska þau en ég meina svona karl-kona-ástlaus. Flestum stundum er ég sátt við að vera minn eigin félagsskapur og ég er orðin nokkuð vön því að sofna ein, vakna ein, borða ein, fara ein á kaffihús, ein í bíó, ein í ferðalag, hlægja ein að brandara í útvarpinu eða fara ein á tónleika. Svo koma þessir dagar þar sem ég er bara hreint út sagt komin með ógeð á að vera ein! Á þessum stundum finnst mér næstum óhugsandi að ég eigi nokkurn tímann eftir að kynnast einhverjum og kyssa á ný! Þá virðist síst auðvelt að finna hreina, fallega og óspillta ást sem ekki kemur með óyfirstíganlegri fortíð, fordómum í garð straumlínulagaðra kvenna eða hreinlega áhuga á annari ást! Juh, hvað ég er mikil kjeddling að skrifa þetta en svona líður mér sem sagt á dögunum þeim, er ég örvænti yfir því að það verði bara einn tannbursti í bollanum það sem eftir er!...næsta dag
Þessa málsgrein hér fyrir ofan skrifaði ég í gær og ákvað að láta hana liggja í bleyti yfir nóttina! Ef ég birti hana ekki er það til að breiða yfir hvernig mér leið í gær af því mér finnst glatað að líða svona klisjulega! En ég birti hana af því að það er hluti af mér að líða eins og mér leið í gær! Ef það er glatað er það bara gott - það kom samt nýr dagur og mér líður ekki eins í dag. Ég er alveg viss um að í heiminum bíður mín prins sem getur ekki beðið eftir að hitta mig :)
Ég er barmafull af ást gagnvart umheiminum og umheimurinn gagnvart mér, ég þarf bara að taka á móti opnum örmum og gleðjast - hvar sem það verður, hvenær eða hvernig! Það eitt veit ástargyðjan sjálf, heill sé henni!
Wednesday, 3 March 2010
Ástin mín
Leita að þér, bíð
Hafna þér, bíð
Sendi eftir þér, bíð
Fagna þér, bíð
Reyni þig, bíð
Tala við þig, bíð
Sendi þig út, bíð
Treysti þér, bíð
Dreymir um þig, bíð
Hylli þig, bíð
Lifi þig, er
Komdu mér á óvart - elskaðu
Ást
Hvar er hann, folinn minn?
Ást í hugarfylgsnum
án formála
Ást í leynum
án skilmála
Ást í skilum
að eilífu, fokk og enter!
Komdu, ástin mín - óttast'eigi, vertu memm
Saturday, 27 February 2010
Á tónleikum með mömmu :)
Hún sæta mamma mín heitin hefði orðið 57 ára í dag hefði hún lifað. Það eru þrjú ár síðan hún var kölluð á aðrar víddir og ennþá finnst mér það hafa verið í síðustu viku! Þó ég gráti enn yfir óréttlætinu og söknuði eftir henni og þess tíma sem fáum ekki að kynnast og vera saman, þá einbeiti ég mér að því að fagna í hjartanu því að hafa komið á þessa jörð fyrir tilstilli einmitt hennar og pabba og að hún hafi þó fengið þennan tíma til að takast á við þau verkefni sem henni voru ætluð í þessari jarðvist. Ég er þess líka fullviss að hún er hamingjusöm á dýrmætri leiðinni sinni. Hún flíkaði ekki tilfinningum sínum, hún mamma en hún kenndi mér margar dýrmætar lessíur og enn þann dag í dag er ég að uppgötva nýjar lessíur 'a la Oddný' :) Thursday, 25 February 2010
Lengi lifi listin!
Það sem ég er heppin og lukkuleg að vera hér og nú -Wednesday, 24 February 2010
...og upp úr fötunni stökk froskur!
Í dag var ég að umpotta og laga til plönturnar í skólanum enda ómögulegt að hafa hálfdauðar, þurrar og óhamingjusamar plöntur í kringum sig! Það bara má ekki! Þegar ég svo tók upp fötu fyrir utan til að nota undir ónotaða potta og áhöld, stökk upp til móts við mig heiðgrænn froskur og lenti á skónum mínum. Mér brá svo að ég æpti upp yfir mig og hræddi litla greyið undir bekk! Er reyndar ekki alveg viss um hvort þetta var froskur eða karta en eftir að hafa leitað á netinu eftir upplýsingum sýnist mér þetta hafa verið alvöru froskur! Prinsinn stekkur á mig og ég bara æpi yfir mig og skelli hurðum.... er það furða? ;)Tuesday, 23 February 2010
Hún Ástríður!
Áður en ég hélt til Wales í síðustu kom ég við á Gatwick (enda alveg í leiðinni ;) og hitti ofurkæra vinkonu mína á afmælisdaginn hennar, ásamt nokkrum vinum. Fyrir utan augljósa ánægju og gleði yfir að fá að knúsa vini sína og fagna afmælisdegi þeirra og fyrir utan það að Baba fékk rauðkálið sitt, var ég svo heppin að fá hana Ástríði loks í hendurnar þar sem hún var uppseld þegar ég fór frá landinu skömmu áður! Ég byrjaði svo að horfa á sunnudagskvöldið og er búin að vera að halda aftur af mér að klára ekki allan pakkann í einu :) Mikið ofsalega finnst mér þetta vel heppnaðir og skemmtilegir þættir... fullkomin afþreying fyrir íslensk hjörtu! Nú á ég bara tvo þætti eftir og get varla beðið eftir að horfa á þá á eftir.Monday, 22 February 2010
Af hverju?
Thursday, 11 February 2010
Gaman að vakna á morgnana!
Þetta er svo góð heimspeki, einföld en sönnust af öllum sannleika - takk fyrir að deila þessu með mér og okkur ef þú skyldir lesa þetta :)
Sunday, 31 January 2010
Vetrarhrím (Bara svo þið haldið ekki ég sé stungin af!)
Thursday, 21 January 2010
Upp af værum draumi
Monday, 18 January 2010
Today's story
Thursday, 14 January 2010
Íhuga - frjósa - flæða
Lukkan yfir mér þarna á miðvikudaginn að fara ekki í afleiðaferð í Ikea (mikil hætta á eyðslu sem ekki má!). Ég hitti vin minn óvænt í kaffilögg og út úr því kom svo partýboð í tilefni gamlársdags í Serbíu, hjá serbesknum vini vinar míns. Þar var sem sagt komið saman gott fólk af ýmsum þjóðarbrotum; Íslandi, Serbíu, Englandi, Grikklandi, Hollandi og Dóminíska lýðveldinu! Allt fór vel fram og fallega og gott að finna félagslegt netið myndast og stækka hægt og bítandi. Þótt ég kvarti yfir að vera ein á stundum, verð ég að viðurkenna að það er líka þægilegt, engar væntingar, engar ögranir! Nú hverfur frost úr jörðu og sjálf er ég að brjótast hægt og bítandi út úr hermísku félagsmynstri, ögra sjálfinu með því að kynnast nýju fólki. Það er áhugavert að kynnast fólki og komast nær kjarna hvers og eins, framhjá eða í gegnum fyrstukynnaupplýsingaöflunina og einnig að leyfa fólki að komast að kjarna þínum (mínum!). Þá finn ég flóðin nálgast, eins og gjarnan gerist eftir miklar úrkomur. Ég hlakka rooooooooosalega til að byrja í skólanum og leyfa öllu því sem er að brjótast um í ástríðufulla en viðkvæma hjartatetrinu mínu að koma upp á yfirborðið og flæða fram í eiginlegu formi og efnislegri umbreytingu.Sunday, 10 January 2010
Hann Lúlli minn!
Enn hefur Þór tökin!
... ég vanda mig á hverjum degi við að taka hversdagsleikanum eins og hann er og lifa algjörlega í núinu! Ég get þó ekki annað en viðurkennt að ég er pínu pirruð yfir hvað veðrið stjórnar miklu hér og hefur mikil fyrirfram áhrif, að mér finnst! Ég hlakka svo til að byrja í skólanum og komast í rútínu, að það er hálffúlt að skólanum sé frestað á morgun vegna yfirvofandi snjókomu! Ég fór t.d. í 1,5 klst göngu í dag og var 2 klst úti að moka í kringum húsið okkar í dag... Ekkert að veðri, ekki einu sinni kalt! Jú, það er ennþá mikill snjór en ekki nægur til að fresta daglega lífinu, finnst mér! Væri ekki líka skynsamlegra að gera ráð fyrir að lífið haldi áfram og fresta þá bara að morgni hins eiginlega dags, ef ástæða er til?!Gömlu brýnin -
Nú er ég búin að sjá tvær myndir í bíó hér í Bretlandi sem er í sjálfu sér ekki í frásögu færandi þar sem þetta voru engin meistarastykki - meira létt afþreyingarefni! Þó ég hafi í raun greitt fyrir herlegheitin eins og fyrir leikhúsferð heima (amk hér áður fyrr!). Í fyrri myndinni fóru Hugh Grant og Sarah Jessica Parker hamförum en í þeirri síðari fóru Alec Baldwin og Meryl Streep með aðalhlutverkin. Ótrúlegt en satt, ég er orðin fullorðin - eins og þau! Mér fannst ég alltaf vera 'stelpan' og þau fullorðna fólkið en nú sé ég t.d. að Grantarinn er að eldast... ekki svo mikið eldri en ég sjálf, fullorðna konan! Jú, ég viðurkenni að síðarnefnda parið eru af kynslóð foreldra minna, frekar en minni en þetta er áhugavert, engu að síður og fær mann náttúrulega til að hugsa! Mun ég verða foreldri? hvernig foreldri þá? verð ég gömul? hvernig 'gömul kona' verð ég? Auðvitað veltur þetta allt á sjálfri mér eftir allt saman, svo lengi sem ég held heilsu og lífi, yfir höfuð - hvað vil ég? Hvernig kona vil ég vera?Friday, 8 January 2010
Maður er manns gaman!
Wednesday, 6 January 2010
Nú er það alvöru!
Sunday, 3 January 2010
Öðruvísi lykt meðal annars!
Friday, 1 January 2010
Sannleikurinn er sagna bestur!
Frá 20. des. s.l. á vetrarsólstöðum til gamlársdags á fullu tungli, þagði ég og hugleiddi - gladdist og þjáðist í senn. Á Vipassana, 10 daga þöglu hugleiðslunámskeiði eða 10 days silent retreat in East Anglia...... þar var ég! Fyrsta ræs á morgnana var kl. 04 og hugleiðslan byrjaði kl. 04.30 og stóð með matarhléum og fyrirlestrarhléi fram á kvöld, ljósin slökkt um kl. 21.30. Þetta var bæði dásamlegt og hræðilegt og allt þar á milli en ég er himinlifandi að hafa farið og ánægð með fræðin, tæknina og árangurinn. Ég mæli með þessu og þeir sem vilja kynna sér málið frekar, endilega kíkið á heimasíður eins og http://www.dipa.dhamma.org/, http://www.vipassana.com/ eða http://www.dhamma.org/.Það er skrítið og áhugavert að koma út úr svona dvöl og mikilli samveru með engu nema sjálfum sér að algjöru leiti í 10 daga. Einnig eftir að deila herbergi með 5 öðrum konum í algerri þögn (engar augngotur eða handapat), engin skriffæri, bækur, tónlist, tölvur, símar eða annað sem annars dreifir athygli okkar svo ötullega í hversdagsleikanum. Það er boðið upp á létt en gott fæði og morgunmaturinn kl. 06.30 var algjörlega í uppáhaldi. Ég er nú opinberlega farin að borða hafragraut, ekki seinna vænna fyrir hálffertuga konuna! Ekki að það sé það eina sem komið hafi út úr dvölinni en....
Gleðilegt ár 2010... og ég meina það!
Ég óska okkur öllum af öllu lifandi hjarta áframhaldandi jákvæðum skrefum í rétta átt, góða átt - gleði, friðar og umfram allt kærleika og sannleika.

