Nú er ég búin að sjá tvær myndir í bíó hér í Bretlandi sem er í sjálfu sér ekki í frásögu færandi þar sem þetta voru engin meistarastykki - meira létt afþreyingarefni! Þó ég hafi í raun greitt fyrir herlegheitin eins og fyrir leikhúsferð heima (amk hér áður fyrr!). Í fyrri myndinni fóru Hugh Grant og Sarah Jessica Parker hamförum en í þeirri síðari fóru Alec Baldwin og Meryl Streep með aðalhlutverkin. Ótrúlegt en satt, ég er orðin fullorðin - eins og þau! Mér fannst ég alltaf vera 'stelpan' og þau fullorðna fólkið en nú sé ég t.d. að Grantarinn er að eldast... ekki svo mikið eldri en ég sjálf, fullorðna konan! Jú, ég viðurkenni að síðarnefnda parið eru af kynslóð foreldra minna, frekar en minni en þetta er áhugavert, engu að síður og fær mann náttúrulega til að hugsa! Mun ég verða foreldri? hvernig foreldri þá? verð ég gömul? hvernig 'gömul kona' verð ég? Auðvitað veltur þetta allt á sjálfri mér eftir allt saman, svo lengi sem ég held heilsu og lífi, yfir höfuð - hvað vil ég? Hvernig kona vil ég vera?Sunday, 10 January 2010
Gömlu brýnin -
Nú er ég búin að sjá tvær myndir í bíó hér í Bretlandi sem er í sjálfu sér ekki í frásögu færandi þar sem þetta voru engin meistarastykki - meira létt afþreyingarefni! Þó ég hafi í raun greitt fyrir herlegheitin eins og fyrir leikhúsferð heima (amk hér áður fyrr!). Í fyrri myndinni fóru Hugh Grant og Sarah Jessica Parker hamförum en í þeirri síðari fóru Alec Baldwin og Meryl Streep með aðalhlutverkin. Ótrúlegt en satt, ég er orðin fullorðin - eins og þau! Mér fannst ég alltaf vera 'stelpan' og þau fullorðna fólkið en nú sé ég t.d. að Grantarinn er að eldast... ekki svo mikið eldri en ég sjálf, fullorðna konan! Jú, ég viðurkenni að síðarnefnda parið eru af kynslóð foreldra minna, frekar en minni en þetta er áhugavert, engu að síður og fær mann náttúrulega til að hugsa! Mun ég verða foreldri? hvernig foreldri þá? verð ég gömul? hvernig 'gömul kona' verð ég? Auðvitað veltur þetta allt á sjálfri mér eftir allt saman, svo lengi sem ég held heilsu og lífi, yfir höfuð - hvað vil ég? Hvernig kona vil ég vera?
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

1 comment:
í öllu falli er Grantarinn þokkaleg pulsa... þó það sé nú alltaf hægt að hafa gaman aðonum. "Would you like some Turkish? ;-)
kv. Pib
Post a Comment