
Það er svolítið skondið að vera Íslendingur í vetrinum hér í Bretlandi - t.d. halda margir að mér geti nú varla fundist vera einhver vetur hér, að ég hljóti að vera vön svo ægilega köldum og vesælum dögum veturinn út á landinu elda og íss að veturinn hér sé barnaleikur einn! Sem er á margan hátt rétt, þ.e. að því leiti að hér fer allt úr skorðum við minnsta snjófall, skólum lokað, almenningssamgöngur leggjast niður og fór þarf oftar en ekki að fara í vinnuna! Kuldinn hér er afstæður í samanburði við Ísland, það er svo rakt hér að minni kuldi á mælinum þýðir samt meiri kuldi í kroppnum. Ég er viss um að mér er alveg jafn kalt og hverjum öðrum sem ekki er vanur köldum vetrum. Helsti munurinn er að hér er fólk ekki undir þetta búið, götur eru ekki ruddar, það er ekki saltað eða sandað og ég hef t.d. aldrei á ævinni séð jafn marga detta kylliflatir á rassgatið eins og um daginn þegar rigndi svona ofan á allt saman (eins og á eftir að gerast einhvern næstu daga, næstu viku). Í dag var allt í lamasessi í Bretlandinu, ábyggilega eins og í fleirum Evrópulöndum og ég verð að segja að nú er þetta alvöru! Það hefur fallið 20-30cm snjór, þykkur og blautur og það snjóar enn og frystir á nóttunni þannig að gamanið er rétt að byrja! Flugvellirnir eins og t.d. Gatwick og Stanstead eru mas lokaðir! Það er dásamlega fallegt úti engu að síður, ekki of kalt, allt hvítt og stillt... hreinlega eins og landið, og kannski landinn, sé undir snjóhvítri, fagurri, ofurmjúkri dúnsæng. Þessa mynd tók ég á göngunni í dag...
1 comment:
bretar er dáldið fyndnir!! haha skólum lokað og allt saman! jiii minn.. þá ferð þú út að labba en allir aðrir heima.. minnir mig pínu á Salou forðum daga!! þegar veðrið varð crazy þá ákvað Ásta að hlaupa heim! við vorum bara heppnar að fá ekki eldingu í rassgatið ;) hehe þetta var svo góð ferð :) þú ert æði :*
Post a Comment